Trúlofunarhringar hjá Chronos.
Hver manneskja og hvert samband er einstakt. Þess vegna eru allir trúlofunarhringar sérframleiddir fyrir hvert par, þar sem þú hannar hringinn fyrir ástina þína. Framúrskarandi gæði og engir tveir hringar eru eins.
Hver manneskja og hvert samband er einstakt. Þess vegna eru allir trúlofunarhringar sérframleiddir fyrir hvert par, þar sem þú hannar hringinn fyrir ástina þína. Framúrskarandi gæði og engir tveir hringar eru eins.
Að bera upp bónorð er eitt stærsta og fallegasta augnablik lífsins. Því fylgir mikil eftirvænting, en oft líka ákveðin óvissa. Hvar á að biðja? Hvenær er rétti tíminn? Og stærsta áhyggjuefnið: Hvernig trúlofunarhringur passar við ástina þína, og hvað ef hann passar ekki?
Margir eyða vikum í að reyna að komast yfir réttu hringastærðina með leynd eða giska á smekk væntanlegs maka. Það getur því miður haft þær afleiðingarnar að áhyggjur af trúlofunarhringnum skyggi á augnablikið sjálft.
Hjá Chronos – Michelsen höfum við leyst þetta vandamál með acredo. Við breytum hefðbundnum kaupum á trúlofunarhring í einstakt og áhyggjulaust ferli. Við léttum af þér allri óvissu og færum ykkur þess í stað upplifun sem þið munuð minnast alla ævi.
Bónorðið sjálft, þar sem öll athyglin beinist óskipt að sambandinu ykkar.
Þið hannið í sameiningu hringinn sem hún mun bera á fingrinum.
Augnablikið þegar þú afhendir ástinni þinni hinn fullkomna trúlofunarhring.
Með acredo verður bónorðið ekki einungis eitt ógleymanlegt augnablik, heldur falleg saga í þremur köflum þar sem vandað handverk og samband ykkar tvinnast saman við gerð ykkar einstaka trúlofunarhrings.
Fyrsta skref
Ferlið hefst þegar þú mætir til okkar í verslun Chronos Michelsen. Í ró og næði setjumst við niður saman og opnum acredo-hönnunarkerfið.
Þú þarft alls ekki að mæta með tilbúin svör eða fastmótaðar hugmyndir. Við skoðum í sameiningu mismunandi hannanir, snið, breiddir og eðalmálma og þú útbýrð fyrstu útgáfuna af trúlofunarhringnum út frá því sem þér finnst passa best við makann.
Annað skref
Í stað þess að láta smíða trúlofunarhringinn strax, og eiga á hættu að stærðin sé röng eða stíllinn hitti ekki í mark, færðu fallegan lánshring hjá okkur til þess að fara á skeljarnar með.
Hvers vegna lánshring? Því að á þessu einstaka augnabliki átt þú eingöngu að hugsa um manneskjuna fyrir framan þig og orðin sem þú ætlar að segja. Allar áhyggjur af því hvort trúlofunarhringurinn sé sá rétti hverfa samstundis. Þú getur notið augnabliksins, játningarinnar og ósvikinnar gleði í fullkomnu öryggi.
Þriðja skref
Eftir hið langþráða „já!“ hefst skemmtilegasti hluti ferilsins. Þið mætið saman til okkar í verslunina þar sem við tökum vel á móti ykkur. Við opnum hönnunarkerfið á ný og förum yfir grunninn sem þú lagðir í upphafi.
Í sameiningu fáið þið svo að fullkomna verkið. Þið finnið nákvæmlega réttu hringastærðina og form hringsins svo hann sitji sem best á fingrinum. Saman veljið þið svo endanlegan málm, áferð og stærð demanta. Sjálfur trúlofunarhringurinn mótast bókstaflega fyrir augunum á ykkur og verður að dásamlegu tákni sem þið sköpuðuð í sameiningu.
Fjórða skref
Þegar hönnuninni er lokið er hönnunin send til sérsmíði í Þýskalandi. Til þess að viðhalda spennunni, sendum við eingöngu skilaboð til þín þegar trúlofunarhringurinn kemur fullbúinn til okkar.
Þú metur svo hvort þú mætir ein/n til okkar að sækja hringinn, og fáir þannig dásamlegt tækifæri til að skapa annað einstakt augnablik þegar þú kemur ástinni þinni á óvart og setur sérsmíðaða trúlofunarhringinn á fingurinn, eða hvort þið mætið saman. Bæði tíðkast og bæði eru frábær augnablik.
Nei, alls ekki. Ráðgjöfin, hönnunin og lánshringur fyrir bónorðið er innifalið við kaup á hring. Þegar þú ert búin/n að hanna hringinn greiðir þú 50% af verðinu og við finnum við eins líkan lánshring og hægt er. Þegar þið komið saman og klárið endanlega hönnun hringins er lánshringnum skilað. Við afhendingu hringsins eru eftirstöðvarnar svo greiddar.
Athugið að ekki er ætlast til að lánshringur sé notaður. Allt í lagi er að setja hringinn upp og njóta hans í skamma stund, t.d. yfir kvöldverðinum, en ekki má nota hringinn svo sjáist á honum.
Verðin hjá acredo eru mjög samkeppnishæf við aðra framleiðendur hér- og erlendis. Þið stjórnið verðinu í raun sjálf, enda hringurinn út frá ykkar forsendum. Verðið uppfærist jafnóðum og breytingar eru gerðar, svo þið sjáið alltaf hvað hringurinn kostar. Val er um 14 eða 18kt gull eða platínu, með eða án demanta, og þá náttúrulega eða ræktaða (e. lab grown).
Við pöntun er endanlegt verð hringsins staðfest, svo það er enginn óvæntur kostnaður. Þetta getur líka hjálpað með að dreifa kostnaði þar sem greiðslurnar gerast í tvennu lagi með einhverra daga eða vikna millibili.
Lánshringinn getur þú fengið hjá okkur samdægurs eða með mjög stuttum fyrirvara, svo þú getir látið bónorðið verða að veruleika nákvæmlega þegar rétta augnablikið rennur upp. Eftir að þið mætið saman til okkar og gangið frá endanlegri hönnun, er acredo um þrjár vikur að framleiða hann og senda til okkar.
Það er algjörlega sjálfsagt og í raun hluti af hugmyndinni! Þú ert á engan hátt bundinn við upphaflega hönnun eða útlit lánshringsins. Þegar þið mætið saman í verslunina eftir hið eftirvænta „já!“ er hægt að gera minniháttar breytingar eins og að breyta málminum, breiddinni, áferðinni, demöntum eða hverju sem er, eða fara í algjörlega nýja hönnun, þar til trúlofunarhringurinn er nákvæmlega eins og þið viljið hafa hann.
Þú þarft engar áhyggjur að hafa af stærðinni. Þegar þið komið til okkar í hönnunartímann, mælum við fingurinn nákvæmlega með sérstökum acredo hringabökkum með mismunandi stærðum, breiddum og formum til að tryggja að hringurinn passi fullkomlega.
Já, acredo býður upp á einhverja fullkomnustu áletrunartækni sem völ er á. Auk hins „hefðbundna“ er hægt að grafa ykkar eigin rithönd, fingraför eða jafnvel loppuför gæludýra. Áletruninni má koma fyrir innan í hringnum eða utan á honum. Þannig er hringurinn gerður enn persónulegri.
Hringirnir sem þú sérð í verslun okkar eru sýnishorn sem sýna breiddina í hönnunarmöguleikum og ekki til sölu. Hver einasti acredo hringur er einstakur og sérsmíðaður frá grunni fyrir hvern og einn. Ef þú heillast af ákveðnum trúlofunarhring í búðinni, getum við auðvitað hannað hann nákvæmlega eins í kerfinu eða notað hann sem grunn að ykkar eigin útfærslu.
acredo hringirnir eru framleiddir í Pforzheim í Þýskalandi af egf Manufaktur sem framleiðir einnig skartgripi fyrir mörg af stærstu, þekktustu og virtustu skartgripamerkjum heims. Pforzheim er ein helsta miðstöð gull- og úrsmíðahefðar í Evrópu og er oft kölluð Gullborgin. Allir demantar eru valdir eftir ströngustu gæðakröfum og hver hringur fer í gegnum ítarlegt gæðaeftirlit áður en hann er afhentur, sem tryggir óaðfinnanlega áferð, gæði og endingu.
Flestir hringar eru steyptir, en við þá aðferð geta myndast örsmáar loftbólur í gullinu sem veikja það með tímanum. acredo notar hins vegar tækni þar sem málmurinn er þjappaður með gríðarlegum þrýstingi áður en hringurinn er smíðaður. Þetta gerir málminn mun þéttari í sér, sem skilar sér í hring sem er harðari, rispast síður og heldur lögun sinni í gegnum daglega notkun í áratugi.
Já, það er hægt að kaupa stakan hring. Hér á Íslandi tíðkast bæði að kaupa einn stakan trúlofunarhring til að biðja einhvers, en trúlofunarhringar geta líka verið eins og giftingarhringar, þar sem parið setur bæði upp trúlofunarhring.
Trúlofunarhringar geta alltaf verið bornir áfram og settir aftur upp í brúðkaupsathöfninni.
Trúlofunarhringaráðgjöf tekur um 45 mínútur. Sama hvort þú sért ein/n og ætlar að koma ástinni á óvart eða þið komið saman, þá getum við hjálpað þér og ykkur við að hanna ótrúlega fallega trúlofunarhringa. Endalausir stílar og möguleikar í boði. Börn eru auðvitað meira en velkomin, þó við mælum með að mæta barnlaus til að upplifunin verði sem best.
Giftingarhringaráðgjöf tekur um eina klukkustund. Bókið tíma hér og hannið ykkar draumahringa í næði og þægilegu andrúmslofti. Sérfræðingur Chronos sest niður með ykkur og fer yfir alla möguleikana og aðstoðar ykkur. Ykkar hringar, ykkar hönnun.