Chronos og Baume & Mercier styðja Bleiku slaufuna. 30% af Bleiku slaufu-úrinu og 10% öllum öðrum Baume & Mercier úrum í október renna til þessa góða málstaðar.
Svissneska merkið Baume & Mercier er eitt elsta úramerki heims, frá 1830, og hefur í tvær aldir verið samofið hugmyndinni um klassíska fegurð og gæði. Merkið sameinar nákvæma úrsmíði og hönnun sem stenst tímans tönn. Úrin þeirra endurspegla lífsgæði, fágaðan smekk og stóru áfangana, hvort sem um er að ræða úr fyrir daglega notkunar eða einstakt tákn um mikilvæg augnablik í lífi þínu.
