Seiko Prospex Alpinist ‘Seiko 145th Anniversary’ – Limited Edition

kr.170.000

Prospex vísar í „pro-specs“ og er lína sem stendur undir nafni þegar kemur að köfun, hraða og könnun. Prospex eru praktísk og áreiðanleg, hvort sem það er í vatni, lofti eða á landi.

Væntanlegt í október.
SKU: HBC006J1 Vöruflokkar: , , , Brand:

Vörulýsing

Limited Edition – framleitt í 8.000 eintökum

Þetta úr er framleitt í takmörkuðu upplagi til að fagna 145 ára afmæli Seiko, upphaflega sem sem úra- og klukkuverkstæði í Tókýó árið 1881.

Skífuliturinn í þessari sérútgáfu nefnist ‘Edo Murasaki’, eða ‘Edo fjólublár’, sem er hefðbundinn japanskur litur, sem táknar von fyrir framtíðinni og fágaða fegurð Edo tímabílsins í Tókýó.

Alpinist-vörulínan kom fyrst á markað árið 1959, og voru upphaflega hönnuð fyrir japanska ‘Yama-otoko’, fjallagarpa, sem áreiðanlegt tól í hættulegum aðstæðum. Snúnings áttavita-glerhringur er á úrinu og er vatnshelt niður á 200M dýpi.

Úrið er knúið áfram af 6R55, sjálftrekktu mekanísku úrverki, sem er hannað og smíðað innanhúss af Seiko.

Úrkassi: 39,5mm – stál
Úrverk: Sjálftrekkt – 6R55 með 72 tíma power reserve
Vatnsvörn: 200M
Skífa: Fjólublá – vísar
Gler: Rispufrítt safírgler – speglunarvörn
Ól: Leður – öryggislás
Ábyrgð: Þriggja ára

Meiri upplýsingar

Kyn

,

Ól / Keðja

Skífulitur
Efni

Stærð

Eiginleikar

, ,

Úrverk

Steinar
Litur steina
Demantastærð
Box og pappír
Árgerð
Vöruflokkar

Vatnshelt