Ást er í kjarna alls sem acredo gerir. Ástin milli tveggja einstaklinga og ást þeirra á vörunni.

Hver manneskja og hvert samband er einstakt. Þess vegna eru allir giftingarhringar sérframleiddir fyrir hvert par, sem hannar hringana sjálft. Framúrskarandi gæði og engir tveir hringar eru eins.

acredo giftingarhringar hjá Chronos

acredo er þekkt um allan heim fyrir hringa af óviðjafnanlegum gæðum, fullkomna til að fagna stóra deginum. Hjá Chronos og acredo færðu bara það besta: einstaka þjónustu og hönnun og þýskt gæðahandverk.

Sérsmíði er grunnurinn að öllu hjá acredo. Í staðinn fyrir að velja úr takmörkuðu úrvali giftingarhringa, sem tugir annarra para hafa þegar valið, er acredo hannað af ykkur, með aðstoð sérfræðinga Chronos. Framleiðsluferlið tryggir að hringarnir eru í hæsta gæðaflokki og koma til með að endast ævina alla. Gullið er þjappað, svo það er þéttara en almennt gengur og gerist í skartgripum – þó karatafjöldinn sé sá sami.

Hönnunarferlið skref fyrir skref

Boðið er upp endalausa möguleika þegar kemur að sniðum, málmum, formum, litum og steinum. Þið getið hannað giftingarhringana hjá acredo nákvæmlega eftir eigin hugmyndum og óskum og látið draumahringana ykkar verða að veruleika.

Fyrsta skref

Form og þægindi

Veljið úr fjölbreyttu úrvali af formum og hönnunarmöguleikum í hönnunarkerfi acredo. Þar getið þið stjórnað breidd, þykkt og prófíl giftingarhringanna til að tryggja hámarksþægindi, sérsniðin að fingrum ykkar.

Annað skref

Málmar og áferðir

Hvað heillar ykkur mest? Gulagull, rósagull, hvítagull eða platína? Við bjóðum upp á tæplega 20 mismunandi málmblöndur sem þið getið valið úr. Áferð giftingarhringanna getur verið allt frá póleruðu eða möttu, yfir í fjölbreyttari valkosti á borð við „frosted“ eða hamrað.

Þriðja skref

Smáatriði og skurðir

Skurðir í hringum geta verið fallegt hönnunarval eða nauðsyn til að aðskilja tvær gerðir málma frá hvorum öðrum. Allt frá V-skurði yfir í bylgjuskurð eða Saturn-skurð, möguleikarnir hjá acredo eru ótrúlegir.

Fjórða skref

Demantahönnun

Hvort sem þið veljið einn stakan demant eða marga, þá getið þið raðað þeim upp algjörlega eftir eigin smekk. Þið getið jafnvel breytt lögun demantanna og ísetningunni svo giftingarhringarnir verða nákvæmlega eins og þið viljið.

Fimmta skref

Persónuleg áletrun

Nöfnin ykkar, falleg skilaboð eða fingrafar yfir í handskrifaða ástarjátningu eða loppufar gæludýrs. Hægt er að fá áletrun innan á og utan á hringina. Þannig fáið þið einstaka hringa sem fylgja ykkur í gegnum lífið.

Bókaðu tíma

Giftingarhringaráðgjöf tekur um eina klukkustund. Bókið tíma hér og hannið ykkar draumahringa í næði og þægilegu andrúmslofti. Sérfræðingur Chronos sest niður með ykkur og fer yfir alla möguleikana og aðstoðar ykkar. Ykkar hringar, ykkar hönnun. Börn eru auðvitað meira en velkomin, þó við mælum með að mæta barnlaus til að upplifunin verði sem best.

Trúlofunarhringaráðgjöf tekur um 45 mínútur. Sama hvort þú sért ein/n og ætlar að koma ástinni á óvart eða þið komið saman, þá getum við hjálpað þér og ykkur við að hanna ótrúlega fallega trúlofunarhringa. Endalausir stílar og möguleikar í boði.

Ást í hverju smáatriði

Hjá acredo er ástin í hjarta alls sem þau gera – ástin milli tveggja einstaklinga, en einnig ást á handverkinu sjálfu. Hefð og nýsköpun fara saman, með gildi um sjálfbærni sem sameinast háum gæðastöðlum.

Það sem einkennir acredo er:

  • einstök hönnun
  • hringar sem er ótrúlega þægilegt að bera
  • einstakar, og fyrsta flokks, steinaísetningar
  • algjört frelsi í einstaklingsbundinni hönnun
  • hæstu mögulegu gæði

Algengar spurningar

Af hverju að velja acredo?

Möguleikarnir eru endalausir hjá acredo! Allir hringarnar eru sérframleiddir, sama hvort það séu giftingarhringar eða trúlofunarhringar, svo úrvalið hjá okkur er einungis sýnishorn til að sýna hluta möguleikanna. Við erum með margar vörulínur frá þeim í allskonar útfærslum, en endanleg hönnun liggur alltaf hjá þér/ykkur.

Þú hefur val um karatafjölda gullsins í mörgum litum (hvítagull, rauðagull, gulagull og „signature“gull, gullblöndu sem acredo á einkarétt á) eða platínu, náttúrulegra eða ræktaðra (e. lab grown) demanta, demantsstærð og fjölda demanta – nú eða enga demanta – og mismunandi breiddir, þykktir og prófíla hringsins. Mismunandi prófílar, eða lögun/form hringsins, henta mismunandi fingrum og mikilvægt er að velja rétt form svo hringurinn sitji rétt og sé þægilegur – þetta á nú gert fyrir daglega notkun út ævina.

Hægt er að áletra texta, fingrafar, loppufar gæludýrs og nánast hvað sem er annað, bæði innan á og utan á hringinn. Sérhannaðir giftingarhringar eru kjarninn hjá acredo.

Með öllum þessum möguleikum er auðvelt að finna rétta hringinn fyrir þig, eða aðlaga hann að þinni verðhugmynd.

Hvað gerir gæði acredo hringa einstök?

Gæðin hjá acredo eru frábær! acredo er framleitt í Þýskalandi af egf Manufaktur sem framleiðir einnig skartgripi fyrir mörg af stærstu, þekktustu og virtustu skartgripamerkjum heims. Framleiðslan er í algjörum heimsklassa hjá acredo og tæknin og ferlarnir sem notaðir eru geta fáir skartgripaframleiðendur leikið eftir.

Hvað kostar að hanna sinn eigin giftingarhring?

Hönnunin og ráðgjöfin er algjörlega ókeypis. Verðin hjá acredo eru mjög samkeppnishæf við aðra framleiðendur hér- og erlendis. Þið stjórnið verðinu í raun sjálf, enda hannið þið ykkar draumahringa út frá ykkar forsendum. Verðið uppfærist jafnóðum og breytingar eru gerðar, svo þið sjáið alltaf hvað hringarnir kosta. Þið hafið val um 14 eða 18kt gull eða platínu, með eða án demanta, og þá náttúrulega eða ræktaða (e. lab grown).

Við pöntun festið þið endanlegt verð hringanna og greiðið 50% inn á þá. Restin er greidd við afhendingu, en þetta getur hjálpað við að dreifa kostnaði þar sem brúðkaup geta verið kostnaðarsöm.

acredo hringar koma ekki í silfri eða stáli og eru því ekki fáanlegir í allra lægstu verðflokkum, en verðin koma samt skemmtilega á óvart.

Þarf ég að bóka tíma?

Nei, alls ekki. Tímabókun fylgir engin skuldbinding. Við mælum alltaf með því að bóka tíma, því það tryggir að sérfræðingur geti örugglega tekið á móti þér / ykkur. Þótt tími sé ekki bókaður er þér / ykkur að sjálfsögðu boðin ráðgjöf, sé sérfræðingur og aðstaðan laus. Ráðgjöfin er svo algjörlega ókeypis.

Sömuleiðis mælum við með því að mæta barnlaus til að upplifunin verði sem best. Giftingarhringaráðgjöf tekur um 60 mínútur og trúlofunarhringaráðgjöf um 30 mínútur.

Hvað ef ég veit ekki hvernig trúlofunarhring makinn minn vill?

Við vitum að margir vilja koma á óvart með bónorði en óttast að velja ekki nákvæmlega þann hring sem makann dreymir um. Hjá okkur er ferlið er einfalt og öruggt:

  1. Hönnun hefst: Þú kemur til okkar, við förum yfir grunnhugmyndir og þú hannar draumahringinn.
  2. Staðfesting: Þú greiðir 50% innborgun upp í væntanlegan hring.
  3. Lánshringur: Þú færð glæsilegan lánshring hjá okkur til að nota við sjálft bónorðið. Þannig hefurðu eitthvað áþreifanlegt og fallegt til að setja á fingurinn á stóru stundinni. Við reynum að hafa lánshringinn eins líkan þínum draumhring og mögulegt er.
  4. Hannað saman: Eftir bónorðið komið þið bæði til okkar í Chronos. Þar fáið þið dýrindis drykk og klárið hönnunina saman. Makinn fær þannig að hafa áhrif á lokahönnun hringsins (steina, málma og prófíl) svo útkoman verði nákvæmlega eins og hún / hann vill.

Hvernig er afhendingartíminn?

Allir hringar frá acredo eru sérframleiddir, svo úrvalið hjá okkur er einungis sýnishorn til að sýna hluta möguleikanna. Almennur afhendingartími á hringum er helst að lágmarki um þrjár vikur, svo því fyrr sem þið komið, því betra. Best er að fá væntanleg brúðhjón eða vonbiðla a.m.k. um sex vikum fyrir brúðkaup eða bónorð.

Hvaða málmum er hægt að velja úr hjá acredo?

acredo býður upp á ótrúlega fjölbreytni í málmum. Hringarnir koma í 14 og 18kt (og jafnvel 22kt!). Þú hefur val um rauðagull, hvítagull, gulagull og „signature“gull, gullblöndu sem acredo á einkarétt á, og einnig platínu. Allt gull og platína sem acredo notar er 100% endurunnið.

Sumar hringahannanir bjóða sömuleiðis upp á keramik, kolefni og fleiri spennandi efni.

Demantarnir eru ýmist náttúrulegir eða ræktaðir (e. lab grown diamonds).

Eru demantarnir og gullið hjá acredo siðferðilega fengið?

acredo er hluti af RJC, eða Responsible Jewelry Council, sem setur gríðarlega strangar kröfur á meðlimi sína.

RJC byggir á þremur grunnstoðum: Mannréttindi & samfélagsleg málefni, umhverfisáhrif og viðskiptasiðferði. Þessar þrjár stoðir tryggja að allir demantar og gull sem acredo notar uppfyllir kröfur um umhverfisvernd og mannréttindi.

Allt gull og platína sem acredo notar er 100% endurunnið.

Hvað gerist ef hringurinn passar ekki?

Í ferlinu finnum við hárrétta stærð fyrir þig, með sérstökum acredo hringabökkum með mismunandi stærðum, breiddum og formum til að tryggja að hringurinn passi fullkomlega á þig!

Ef þú þarft stærðarbreytingu seinna, þá eru allir acredo hringar sendir til þeirra í stærðarbreytingu í Þýskalandi. Ástæðan er hvernig hringarnir eru unnir og er þetta gert til að halda styrk hringsins eftir stærðarbreytingu.

Get ég dreift greiðslum?

Já, þú getur dreift greiðslum. Þú greiðir 50% við pöntun á hring/um og rest við afhendingu. Þar með ertu strax komin/n með greiðsludreifingu án aukakostnaðar, sem getur hjálpað til við undirbúning stóra dagsins.

Við bjóðum jafnframt upp á greiðsludreifingar frá samstarfsaðilum okkar Teya, Netgíró, Pei og Síminn Pay.